Stelkur LIVE

Litla bókmenntatímaritið sem við Kári Tulinius stofnuðum saman náði þeim áfanga á dögunum, eins ótrúlegt og það virðist, að verða þriggja ára.

Með dyggri aðstoð Reykjavíkur Bókmenntaborgar hefur Stelkur fengið að blómstra, við höfum frumbirt sögur eftir margar helstu kempur íslenskra bókmennta, Braga Ólafsson, Gerði Kristnýju, Fríðu Ísberg, Kristínu Eiríksdóttur, Pétur Gunnarsson og Kristínu Ómarsdóttur, svo örfá séu nefnd. Að sama skapi höfum við lagt áherslu á nýjar raddir, og erum ákaflega stolt af því að hafa fengið að vera vettvangur fyrir það allra fyrsta sem upprennandi höfundar hafa birt opinberlega.

Til að halda upp á þriggja ára afmælið ákváðum við að færa út kvíarnar og efna til fjölþjóðlegrar bókmenntahátíðar sem við nefndum á vondri íslensku Stelkur LIVE, og fór hún fram í Norræna húsinu helgina 5.-6. september síðastliðinn. LIVE – af því að á hátíðinni var afmælisheftið, tvöfalt hvorki meira né minna, flutt í heild sinni, af höfundunum.

Í samstarfi við bókmenntaborgirnar í Dyflinni og Vilníus, ásamt Farlit – miðstöð færeyskra bókmennta, buðum við hópri frábærra höfunda; Vónbjørtu Vang, handhafa Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Alvydas Šlepikas, einum virtasta höfundi Litháens, Íslandsvininum Tapio Koivukari frá Finnlandi og írsku höfundum Maggie Armstrong og Sheilu Armstrong, en nýjar íslenskar þýðingar á sögum þeirra birtast í afmælisheftinu, auk spriklandi nýrra smásagna eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Einar Má Guðmundsson, sem einnig komu fram á hátíðinni.

Og það voru yndisfagrir haustdagar í Vatnsmýri, fjöldi góðra gesta, óvæntar sögur úr sovéska hernum og af hættulegum dönskum skáldum. Matur og menning og ómælt kaffi, ný vinátta, fræ og mold og öll þessi hughrif. Svo við getum ekki annað gert en að þakka auðmjúklega fyrir okkur og mælt með að forvitnir og smekkvísir og allir sem vilja láta koma pínu við hjartað í sér lesi Stelk.

stelkur.is

Þ.

Leave a comment