Allan þennan óraunverulega tíma

Fyrir nokkrum árum las ég litla skrítna bók með titilinn Lanny. Það var bözz í kringum hana, man ég, en líka eitthvað sem kallaði á mig, ég á það til að velja mér bækur út frá stemningunni einni saman, vibes, sem stundum er ávísun á vonbrigði. Furðu oft hefur samt innsæið skilað mér óvæntum gersemum, uppáhaldsbókum sem lifa með mér endalaust og breyta því jafnvel hvernig ég hugsa og skrifa.

Lanny var slík bók. Negla og furðuverk. Skrifuð af listfengi og leikgleði, öguð og villt, út fyrir þröngan ramma bókmenntagreina, en án tilgerðar. Ef það voru stælar þá var það besta gerð af stælum.

Ég fór í kjölfarið og las allt sem ég komst yfir eftir höfundinn, Max Porter.

Þriðja október síðastliðinn sat ég svo uppi á sviði í Tjarnarbíó með Max Porter, með Max vini mínum, þessari leiftrandi, örlátu, hlýju, miklu manneskju sem ég var rétt nýbúin að kynnast, í annað sinn að mér fannst. Við spjölluðum um listina og lífið, um skáldsögur og ljóð og hvað það er að vera listamaður og manneskja og foreldri og barn í þessum heimi. Við töluðum um verkið sem hann var nýbúinn að flytja, við göldróttan undirleik Skúla Sverrissonar og Magnúsar Jóhanns Ragnarsonar, All of this Unreal Time, sem Max skrifaði fyrir stórleikarann Cillian Murphy og ég hafði þýtt fyrir þetta tilefni.

Allir sem ég hef síðan heyrt í voru uppnumdir. Þetta kvöld var eitthvað annað, bókmenntaviðburður en fyrst og fremst viðburður. Ég hef talað við fjölmarga aðra sem hefðu viljað mæta en fengu ekki miða – það varð uppselt á örfáum dögum. Við bættum við miðum og tróðum sætum hvar sem mögulegt var, samt komust færri að en vildu. Sem öll skáld geta sagt ykkur að gerist ekki á hverjum upplestri.

Við fengum síðan þann heiður og ánægju að verja viku með Max Porter á Íslandi, sýna honum Þingvelli í haustlitunum, Gullfoss og Geysi og Gljúfrastein, kynna hann fyrir miðborginni, fyrir kollegum og ýmsum gersemum í mannsmynd. Sjaldan hefur einn maður átt jafnvel heima í íslenskri náttúru. Sjálf er ég nokkrum vinum ríkari, brjóstið fullt af innblæstri og þakklæti. Til Brynju og Fríðu sem hafa þann ofurkraft að einfaldlega láta hlutina gerast. Til Magnúsar og Skúla, Kjartans og Bókmenntaborgarinnar, Tónlistarborgarinnar og Tjarnarbíós.

Og galdurinn hékk í loftinu út vikuna. Á fimmtudeginum kvöddum við Max, stilltum sjónvarpið á sænsku akademíuna og Anne Carson varð nóbelsverðlaunahafi.

Leave a Reply